Sæl kæra fjölskylda.
Ég ætla að byrja á að taka undir orð Gerðar frænku minnar hér að neðan og hvetja ykkur öll til vera duglegri við að skrifa inn á bloggið. Ég hef sjálfur ekki verið nægilega duglegur en það ætti maður nú bara að geta séð á mínu eigin
bloggi, sem ekki hefur verið uppfært í marga mánuði :)
Það er af okkur að frétta að haustið er loksins farið að láta fyrir sér finna hérna í Kaupmannahöfn. Ekki er þó farið að snjóa hér eins og á Íslandi heldur er hitastigið búið að lækka nokkuð síðustu vikur og laufblöðin hafa að mestu látið sig falla niður á gangstéttina. Mér þykir haustið hérna í Kaupmannahöfn mjög fallegt. Það eru svo margir litir að sjá og yndislegt að hjóla í vinnuna á hverjum morgni. Ég á eftir að sakna þess mikið þegar við flytjum aftur heim til Íslands.
Það er ekki langt í það reyndar, aðeins 9 mánuðir tæplega og við verðum komin aftur heim á klakann aftur, þetta er svo ótrúlega fljótt að líða. Stefnt er að því að byggja þegar við komum heim og höfum við sótt um lóðir bæði í Kópavogi og við Reynisvatnsás í Reykjavík. Helga amma sótti um með okkur og stefnum við að því að byggja litla íbúð í húsinu okkar svo hún geti búið með okkur. Annars er alls ekkert víst að við fáum úthlutað og verður maður bara að vona það besta. Ef ekkert gerist þá förum við örugglega bara á leigumarkaðinn þegar við komum heim og reynum að sækja aftur um lóð seinna.
Svo er auðvitað stefnt að brúðkaupi næsta sumar, í ágúst eftir að við flytjum heim svo það er eins gott að allir taki frá dag í lok ágúst fyrir okkur :)
Nú er Erla að taka fyrstu skrefin í átt að lokaritgerðinni sinni og er hún í því að velja sér efni til að skrifa um. Sjálfur hef ég nóg að gera í vinnunni og verkefnin flæða inn. Ég er einmitt að koma til Íslands í þarnæstu viku útaf vinnunni svo kannski hittumst við á förnum vegi ...
Á miðvikudaginn fórum við Erla, Þórhallur og Þórunn niður í Bryggen að sjá Egil Skallagrímsson, einleik um sögu Egils Skallagrímssonar í flutningi Benedikts Erlingssonar. Ég var virkilega ánægður með þessa sýningu og hvet alla, unga sem aldna, danska sem íslenska að fara að sjá þessa sýningu (ef hún er ennþá sýnd heima þeas :)). Nóg að gera hérna í Kaupmannahöfn því svo förum við öll á tónleika með Bubba á sama stað (Bryggen) þann 15. nóvember, Mugison er daginn eftir og svo er auðvitað búið að kaupa miða á landsleik Dana og Íslendinga á Parken seinna í mánuðinum. Nóg að gera í nóvember!!
Jæja, það er örugglega fullt sem ég er að gleyma en vonandi verð ég þá duglegri við að skella því hér inn á bloggið ef eitthvað merkilegt gerist.
Kveðjur til ykkar allra.
Jonathan & fjölskylda.