miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Frá Helgu - án leyfis

Helga setti inn svo skemmtilegt komment á pistilinn hanns Jonathans, semauðvita hefði átt að vera blogg. Ég tek mér því það bessaleyfi að setja það inn sem blogg hér með.

Æ elskur auðvitað saknið þið þess sem fjarri eru okkur að ekkert fjör er á þessari frábæru bloggsíðu okkar..Meira segja ég er hætt að opna hana en geri betur í frammhaldi af þessari áskorun..Eins og allir vita þá var mér sagt upp í Öndvegi eftir 7 1/2 ára trygga þjónustu.. Ok.. Var komin með vinnu tveim dögum seinna í versl. Egg.. Það er svona þokkalegt. Mikið að gera verð ég að segja .. Hef ekki unnið svona vinnu áður.. Og er ekki venjulega þreytt eftir daginn ..En frábært fólk sem vinnur þarna. Það eru aðrir að toga í mig svo ég sé svona aðeins til hvernig og hvað ég geri.Langar í frammhaldi að þakka hvað allir voru yndislegir við mig þegar þetta fréttist, yndisleg fjölsk. Nóg um mig..

Að öðru..Get ekki annað en brosað þegar ég les að J..og fjölsk.eru búin að sjá Skallagrímsson í Köben..Sérstaklega þegar þetta er búið að vera á fjölunum rétt við bústaðinn okkar í allann þennann tíma... Við erum svo bústaðakær þegar við erum komin uppeftir að það er ekki neitt venjulegt. Jú hausið er svo sannarlega komið með stæl hálka snjór rok og rigning og laufið löngu horfið... Aldeilis fjör í Köben í nóvember.. gaman að vita að því..

En ætli ég hætti ekki núna og sendi mínar bestu kveðjur til ykkar..og fullt af kossum til Guðjóns Inga ömmu barns og Gests Ömmu systur barns ... Je minn gleymi einu hvað haldið þið að ég hafi keypt mér í dag... Nema súkkulaði ramagnspott svo lítinn og krúttlegann svo nú get ég búið til nammi og allt mögulegt jarðaber með súkkulaði .. hjúpa rúsínur og fl. og fl .. Svo ef þið viljið fá pottinn lánaðann þá bara að hafa samband.

Kveðjur.... Helga

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sæl öll saman.
Ár og dagur síðan ég hef kíkt á bloggið enda lítið verið þar að sjá eins og frægt er.
Nú en í dag eru fréttir svo ég fór að kíkja en það er ekki komið blogg um það. Ég segi ekki neitt!!!
Það er gaman að heyra frá ykkur hvar svo sem þið eruð stödd og gott að vita að allt er í góðum gír hjá ykkur. Já, níu mánuðir verða fljótir að líða og það verður gaman að fá ykkur heim en ég hélt þið ætluðið að gifta ykkur á afmælisdaginn minn??? Jæja, ég kyngi því!
En það er fjör að vera komin heim. Íslenski hraðinn lætur ekki að sér hæða, maður sogast inn í hann og dansar með. Það er alltaf brjálað að gera og dagurinn allt of stuttur.
En það er gaman að vera nálægt sínum og um helgina áttum við heilmikil samskipti við okkar prins og prinsessu, sáum hana í ungbarnasundi á laugardag þar sem ég fór líka oní ásamt Unnari og Stefáni Mána en aðdáendaklúbburinn var á bakkanum, Vala, Þór, Hekla amma og litli Toni. Svo dásamlegt að sjá þessi kríli í sundi öll svona ólík. í gær komu þau svo í mat og það var líka svo gaman. Tengdó var líka en hún er nú meira og minna ein því Stefán er inn og út af spítölum þessa dagana svo það er nóg að gera þar líka.
Þór sækir um vinnu út um víðan völl. Er búinn að vera að leysa af í Hamrahlíð í þrjár vikur og svo er hann handlangari hjá U. Óla þegar þörf er á því. Við erum að vona að eitthvað af þessum umsóknum hans fari bráðum að skila sér með fastri vinnu.
Bestu kveðjur til ykkar allra nær og fjær, þó sérstaklega fjær.
Hulda

12/11/07 23:28  

Skrifa ummæli

<< Home