fimmtudagur, desember 29, 2005

Helga á afmæli í dag

Í Espigerðinu stendur sem hæst afmælisveisla frú Helgu Ólafsdóttur. Þar er margt um manninn eins og vera ber og hlaðborð drekkhlaðið ostum og öðrum gómsætum mat. Mig langaði að óska henni móður minni hjartanlega til hamingju með afmælisdaginn og von um bjarta framtíð. Takk fyrir komuna öllsömul.

Jonathan

Hulda meldar sig inn

Nú ætti Ljónið að koma öskrandi inn hafi því tekist það ómögulega!!! Það er að komast í gegnum alla blogg múrana. Ég segi nú eins og Donni, ég ætlaði að fara að skella tölvunni aftur og gefa d og d í þetta blogg allt saman og koma mér bara í bælið en ákvað samt að reyna einu sinni enn og þá allt í einu birtist græni plúsinn sem ekki hafði sést þar áður en ég sé engan séns á titli á þessi skrif mín neins staðar á þessari síðu. Nenni ekki að skrifa nein ósköp því ég veit ekki hvað gerist með þessi skrif en ætla þó að segja að við verðum ekkert vör við nein læti hérna hjá okkur þó okkur skilist í fréttum að allt sé vitlaust. Strætó gengur ó ekki eftir klukkan sjö á kvöldin eins og ástandið er.
Bloggarakveðja með von um að ég sé kominn gegnum múrinn.
Hulda

föstudagur, desember 23, 2005

Jólakveðja

Óska ykkur öllum Gleðilegra jóla og farsældar á nýju á nýju ári
öllum nær og fjær.
Hittumst svo hjá Unni annan dag jóla í jólaskapi
tilbúin í kakó og kökur´púkkið og alla gleðina.
Maður er rétt að komast í jólaskap.
Gunnar frændi Magnússon var hjá mér í dag og bað að heilsa öllum.
Hann sagði mér að Brynjar og sonur væru í heimsókn yfir jólin með soninn..en þeir búa hjá Letlu.Hann verðu eitthvað framm yfir áramót.
Svo kemur Gunnar Njálsson og verður hjá honum á gamlárskvöld.
Voða gaman að spjalla við hann.
Jólakveðjur
Helga

þriðjudagur, desember 20, 2005

Jólahugvekja

Takk fyrir góðan dag í Laufrimanum í dag. Nú ætla ég, trúleysinginn, að senda ykkur svo fallega jólahugvekju sem Séra Toskiki Toma, vinur minn, skrifaði og sendi mér.

"Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur upp renna sól af hæðum að vitja vor og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans, og beina fótum vorum á friðar veg." (Lk. 1:78-79)

Í samfélagi okkar er til fólk sem situr í myrkri og skugga dauðans.

Hvaða fólk er þetta?

Á dögum Jesú voru það t.d. tollheimtumenn, hermenn eða sjúklingar. Af ýmsum ástæðum, stóð þetta fólk fyrir utan venjulegt borgaralegt samfélag. Það var einangrað og missti næstum alla von og gleði til þess að lifa lífi sínu.

Þá kom Jóhannes skírari. Hann var ekki sjálfur ljósið, en hann benti á ljósið sem skín í fjarska. Jóhannes kom og sagði; "þér nöðru kyn, hver kenndi yður að flýja komandi reiði?" Þrátt fyrir slík orð sneri fólkið sér ekki frá honum. Af hverju? Af því að hann mismunaði ekki fólki. Jóhannes ávarpaði þetta yfirgefna fólk alvarlega og einlæglega. Á meðal margra trúarleiðtoga, var það aðeins Jóhannes sem leit á þetta fólk sem mannneskjur sem ættu að teljast til Guðs lýðs. Hvert og eitt okkar er jafnt fyrir augum Guðs. Hörð orð hans voru ekkert annað en tjáning þess.

Síðan kom Jesús. Hann var sjálfur ljósið. Hann var með fólki sem hafði setið í myrkri, og varð síðan það fólk sem bar ljós Guðs í samfélaginu. Guð valdi þau til að sýna dýrð sína.

Nú virðist sem margir sitji enn í myrkri í kringum okkur. Af hverju? Kemst ljós Guðs ekki til þessa fólks? Ber enginn ljósið til þess? En fyrst og fremst, hverjir sitja í myrkri núna?

Í fyrsta lagi nefni ég sjúklinga, fátæka, fatlaða, atvinnulausa, fanga, flóttamenn o.fl. Það er að segja fólk sem á í ýmsum erfiðleikum í félagskerfinu. Að sjálfsögðu eru ekki allir sjúklingar eða allt fatlað fólk í myrkri. Samt er viss tilhneiging í samfélagi okkar, sem reynir að útiloka fólk sem frábrugðið er "meðaljóninum". Í öðru lagi getur það verið fólk sem er sorgmætt eða einmana, t.d. vegna fráfalls einhvers í fjölskyldu sinni. En í þriðja lagi, hverjir fleiri?

Ég er prestur en fyrir rúmlega tveimur árum var ég atvinnulaus. Ég var að hlaupa úr einu í annað til þess að ég kæmist aftur í þjónustu. Dag nokkurn var ég beðinn um að heimsækja sjómann frá Indónesíu á spítala. Hann slasaðist alvarlega á skipi sínu og varð að dvelja hérlendis til að fá meðferð. Hann talaði aðeins japönsku sæmilega fyrir utan móðurmál sitt, og hann var múhameðstrúar. Hann var ólíkur öllum öðrum þar.

Við hittumst nokkrum sinnum, en í byrjun var hann eðlilega mjög einangraður, hræddur og dapur. Hann var mikið meiddur og missti vinnuna á skipinu. Hann var skilinn einn eftir langt í burtu að heiman. Seinna byrjaði maðurinn að tala um sjálfan sig, t.d. um heimili sitt í Djakarta og um konuna sína og fjögurra ára dóttur. Draumur hans var að opna eigin bókaverslun, en til að gera það yrði hann að spara peninga; o.fl. Stig af stigi tók ég eftir því að hann var ekki bara "sjómaður frá Indónesíu", heldur maður sem bar sitt eigið nafn, átti sína ævisögu og skyldur. Þegar hann loksins lagði af stað til síns heimalands, var hann mjög glaður á svipinn og sagði mér hve mikið hann hlakkaði til þess að hitta fjölskyldu sína. Ég bað Guð innilega fyrir honum og fjölskyldu hans.

Fyrst hélt ég að þessi maður væri einhver vesalingur og ætlaði að hugga hann. Það má segja að hann hafi setið í myrkri hér á landi. Ég reyndi að bera ljós til hans. Það er eitt, en hér er annað atriði til. Það er að ég var sjálfur huggaður með því að fá að hitta þennan mann. Spjallið við hann rifjaði mikið upp fyrir mér. Það er að hver maður er dýrmætur og einstakur. Hve þakkarvert er að eiga fjölskyldu sem bíður alltaf eftir manni og hve ómetanleg gleði er að fá að þjóna náunga okkar, sérstaklega einhverjum sem á í erfiðleikum. Ég hafði gleymt þessu og glatað á meðan ég var upptekinn af eigin vandkvæðum mínum, sem var atvinnuleysið. "Maðurinn frá Indónesíu" vakti mig til umhugsunar.

Hver sat þá í myrkri þegar allt kom til alls? Jú, maðurinn frá Indónesíu. Og ég líka. Ég sat í myrkri, en ég vissi það ekki. Þegar ég gleymdi gleðinni að elska og þjóna náunga mínum var ég kominn í það myrkur. Myrkur er ekki aðeins staða þar sem okkur skortir að vera elskuð, heldur líka sú staða þar sem við getum ekki elskað nóg þar sem við lítum ekki með kærleika og virðingu til annarra sem jafningja okkar. Við gleymun þessu svo oft og föllum ómeðvitað í myrkur. Guð gerir þann jafnan sem býst við því að vera elskaður og þann sem á að elska. Ég hélt að ég gæfi manninum frá Indónesíu ljós. Hvílíkt yfirlæti. Ljósið kom yfir hann, og yfir mig frá Jesú. "Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors." Hvert og eitt okkar er jafnt fyrir augum Guðs.

Við erum ekki sjálf ljósið. Samt er okkur heimilt að benda náunga okkar á ljós Jesú, sem lýsir okkur sjálfum líka samtímis. Hverjir sitja í myrkri? Megi ljós Jesú berast til þeirra núna á aðventu.

*******************************
Toshiki Toma, prestur innflytjenda

Nýji bifvélavirkinn

Þórður útskrifaðist sem bifvélavirki frá Borgarholtsskóla á laugardaginn. Eftir áramót byrjar hann á samningi hjá Brimborg. Þannig að nú er um að gera fyrir alla bíla í fjölsk. að bila og Þórður gerir við þá alla.
Við sjáumst svo vonandi öll á annan í jólum í púkkinu og félagsvistinni að ógleymdu súkkulaði og kökuveislunni. Við verðum í Laufrimanum að þessu sinni.
Hlakka til að sjá ykkur öll.
Unnur

föstudagur, desember 16, 2005

Tvítyngi

Það þorir auðvita enginn að skrifa nema geta greint frá stórsigri. En ég ætla bara að segja sögu af tvítyngda syni mínum. Honum fer svo fram í málþroska núna og er þar af leiðandi farin að blanda meira saman íslensku og spænsku. Saúl var að spurja hann einn morguninn hvað afi væri og Gestur segir "Afi, casa (heima), sofa". Um daginn benti hann svo á punginn á sér og sagði "Egg"! En "egg" og "pungur" er eins á spænsku og ég var svo stolt af honum að tengja saman spænska og íslenska orðið og nota það íslenska við mig - því enginn hefur sagt honum að pungur héti egg á íslensku.

þriðjudagur, desember 13, 2005

Helga skrifar

Bara svona í gamni eftir ótal sigra er þá allt búið??
Það kemur ekki orð frá einum einasta manni af Pálsættinni.
Hvað er í gangi ??
Bara svona datt þetta í hug.
'Eg aftur á móti er alltaf að VINNA VINNA.
Orðin pínu þreytt
Vona að heyra fra ykkur
Helga

þriðjudagur, desember 06, 2005

10 hlutir sem þú vissir ekki um Valgeir Gestsson

Ég les yfirleitt ekki slúðurblöð. Ekki bara afþví að þau eru sori og viðbjóður heldur líka afþví að ég hef ekki haft aðgang að slíku efni hér í Kaupmannahöfn, að minnsta kosti ekki fyrr en í dag.

Á vef Vísis er nú hægt að nálgast öll nýjustu blöðin sem þeir bjóða upp á í stafrænu formi. Þar má nefna Fréttablaðið, DV, Markaðinn, Birtu, Sirkus og Hér og Nú. Ég ákvað því að gera undantekningu og "glugga" aðeins í blað Hér og nú frá því í síðustu viku sem væri nú ekki frásögu færandi nema að í blaðinu rakst ég á mynd af Valgeiri (eða Valla eins og hann er víst kallaður) frænda mínum á einni síðu blaðsins Þar telur hann upp 10 hluti sem fæstir (eða enginn?) ætti að vita um hann ...

Sækjið blaðið hér (síða 66).

föstudagur, desember 02, 2005

Enn af sigrum fjölskyldunnar

Þegar ég les yfir nýlega pósta sé ég að mikið hefur verið um sigra í fjölskyldunni undanfarið. Johnny Rocker veður í æstum aðdáendum, Margrét komin með gula beltið, Jonathan raðar inn verðlaunum fyrir vefina sína og Gerður á leiðinni til Argentínu með styrk.

Mér finnst ég verða að leggja eitthvað til málanna. Í gær kom út 130. árgangur Andvara, tímarits Hins íslenzka þjóðvinafélags, og nafnið mitt er á forsíðu! Ég á grein í ritinu, ásamt Guðrúnu Láru samnemanda mínum, um Halldór Laxness - ævisögu eftir Halldór Guðmundsson. Ég hef því fengið efni eftir mig birt í fyrsta skipti.




Við erum búin að setja nýjar myndir á myndasíðuna okkar. Hafsteinn er alltaf jafn ljúfur og góður og skemmtir sér vel í leikskólanum. Í gær og fyrradag var hann að „gaka gollur“ með hinum krökkunum og í morgun var foreldrunum boðið í bollukaffi.