fimmtudagur, maí 04, 2006

Guðjón Ingi 2 ára


Elsku Guðjón minn til hamingju með 2 ára afmælið. Hafðu það gott í dag og alla daga í Danmörku. Sendi með mynd af þér síðan þú komst í kveðju pössun til okkar í Laufriman áður en þið fluttuð út. Bestu kveðjur til mömmu og pabba og hamingjuóskir með drenginn sinn. Unnur frænka

2 Comments:

Blogger Jonni said...

Takk fyrir það elsku frænka. Við Erla vöktum GI með fallegum afmælissöng í morgun og hef ég sjaldan séð barnið jafn hissa. Ekki afþví við vorum að syngja svona fallega heldur afþví hann hefur sennilega aldrei séð foreldra sína báða á fótum svona snemma og brosandi þar að auki :)

Kveðjur frá 20 stiga hita í Kaupmannahöfn!!

4/5/06 09:08  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég sendi ykkur bara aðrar hamingjuóskir hér! Ég öfunda ykkur útlendingana ekkert af veðrinu, ég fór út á peysunni í morgun - já, það er sól á Íslandi!

María

4/5/06 13:03  

Skrifa ummæli

<< Home