fimmtudagur, apríl 13, 2006

Langamma væri stolt!


Ég varð að deila þessari mynd með ykkur. Ég var að byrja á lopapeysu og lagði hana frá mér í sófann þar sem Gestur sjónvarpssjúklingur sat og horfði á Brúðubílinn. Hann greip prjónana strax og sat svo og prjónaði og prjónaði! Hann bar sig svo fagmannlega að, að langamma hans hefði orðið stolt af að sjá hann.

2 Comments:

Blogger Jonni said...

Hvað er verið að prjóna gestur minn?! :)

13/4/06 21:01  
Blogger Donni said...

Frábær mynd. Alveg bráðsniðugt að sjá frænda með prjónana.

18/4/06 12:36  

Skrifa ummæli

<< Home