mánudagur, apríl 24, 2006

Mögnuð móðursystir

Mig langar að vekja athygli á því að ein af mínum uppáhalds móðursystrum hefur aldeilis verið að gera það gott undanfarið. Ég skemmti mér konunglega í gærkvöldi við að horfa á myndina um kórinn hennar Unnar og öfunda hana af því að vera meðlimur í þessu öfluga samfélagi. Og ekki nóg með að hún væri í sjónvarpinu: Um helgina hljóp Unnur Lundúnamaraþonið - geri aðrir betur. Því segi ég: Mögnuð móðursystir!

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er aldeilis kraftur í henni!

Myndinni missti ég af, enda geri ég lítið annað en að skrifa og hugsa um að skrifa þessa dagana.

María

25/4/06 19:24  
Blogger Unnur María Ólafsdóttir said...

Þakka þér fyrir þessi fallegu orð elsku litla nabba mín. Kíkti loksins á bloggið í gærkvöldi. Ef einhver hefur misst af Kórnum á ég eintak af disknum til láns. Hafið bara samband. Unnur

4/5/06 08:30  

Skrifa ummæli

<< Home