þriðjudagur, nóvember 29, 2005

Til Argentínu

Það eru tómir sigrar þessa dagana í fjölskyldunni. Nú síðast var ég að fá þær fréttir að ég væri komin með Rotary International styrk til að fara í mastersnám í Buenos Aires í Argentínu. Ég er alveg í skýjunum! Saúl brosir, en hefur áhyggjur að praktískum atriðum. Það sem ég er að fara að læra heitir Meistaranám í alþjóðlegum friðarfræðum og lausn átaka (International Peace and Conflict Resolving) og fæst við eflingu friðar, friðsamlegar lausnir á átökum og þróun. 1 1/2 árs nám í einum virtasta og dýrasta háskóla í Argentínu, Buenos Aires. Námið hefst í mars / apríl 2007. Allt borgað, meira að segja einn flugmiði til og frá.

Það eru allir velkomir í heimsókn. Ég sendi ykkur góðan link á borgina svo þið getið farið að hita upp http://www.bue.gov.ar/home/index.php?&lang=en

Kveðja,
Gerður

2 Comments:

Blogger Unnar Óli said...

Til hamingju með þennan stóráfanga! Ekki slæmt að næla sér i frítt mastersnám! Glæsilegt!

30/11/05 02:31  
Blogger Donni said...

Til hamingju Gerður mín og þið öll. Ég endurtek það sem ég sagði um daginn, vertu viðbúin innrás okkar Akurgerðis-barnanna. Við stoppum ekkert utanferðir eftir Lyon í vor.

1/12/05 16:03  

Skrifa ummæli

<< Home