sunnudagur, nóvember 13, 2005

Súsannan mætt

Elskulega fjölskylda, SMG er online. Unnur drakk tebolla hjá mér í morgun og færði mér alls konar fréttir af blogginu svo að ég sá að þetta er meiriháttar virk síða sem nauðsynlegt er að tékka á 5 mín. fresti. Er á kafi í unglingavandamálum og slíku sem ekki er gaman að blogga um nema í undantekningartilfellum. Vildi stundum vera langt í burtu - skelli inn einni mynd frá síðasta skreppi (ef það tekst): Bledvatn í Slóveníu, Paradís á jörðu. Kem sterk inn þegar ég verð í stuði.

1 Comments:

Blogger Jonni said...

Sæl kæra frænka,

velkomin í hópinn. Það verður gaman að fá að lesa nokkrar gelgjusögur úr Breiðholtinu í framtíðinni.

13/11/05 22:43  

Skrifa ummæli

<< Home