miðvikudagur, nóvember 09, 2005

Afmælisveislan mikla


Jæja komið öll sæl og blessuð og til hamingju með þennan nýja íverustað!
Þetta er einkar góð tímasetning því nú er komið að afmælinu hans Stefáns Mána. Strákurinn að verða tveggja ára!...ótrúlegt! Það er öllum boðið sem vilja koma og það er reiknað með því að allir vilji koma þannig að öllum er boðið.Veislan verður þann 20. nóv og mæting...ja...segjum kl 15:00. Ef þið af einhverjum óskiljanlegum orsökum komist ekki (Verandi staddur í öðru landi eða hinu megin á þessu landinu er skiljanlegt(og þar sem það er eitthvað lítið um smiði fyrir utan mig og Gest þá getur enginn notað afsökunina "Ég verð að vinna" því enginn nema smiður er nógu vitlaus til að vinna á sunnudegi)) látið mig þá endilega vita annað hvort hér á blogginu eða á e-mail unnar05@ru.is sem er mailið mitt á meðan ég verð í skólanum.

2 Comments:

Blogger Jonni said...

Sæll frændi og velkominn í bloggið :)

Við baunafjölskyldan verðum því miður farin aftur út til Kaupmannahafnar þegar þessi merkisviðburður á sér stað. Við verðum að sjálfsögðu með ykkur í anda :)

9/11/05 21:56  
Blogger Súsanna Margrét said...

Elsku frændi, langar að kíkja inn seinnipartinn, sjá ykkur og nýju íbúðina en ekki reikna með mér í kaffi. Svo er White Stripes um kvöldið ...

13/11/05 21:44  

Skrifa ummæli

<< Home