mánudagur, mars 19, 2007

Komin á staðinn

Við erum komin til Nicaragua nú fyrir tæpri viku síðan og ferðalagið gekk vel. Af flugvellinum vorum við keyrð í risastórt hús sem mun verða heimili okkar næstu tvö árin. Til marks um stærðina þá vorum við fram á næsta dag að uppgvötva ný baðherbergi og klósett í því. Þarna eru 4 svefnherbergi, 4 klósett í aðalhlutanum. Svo er herbergi og klósett fyrir þjónustustúlkuna í annari álmu og auðvita klósett í garðinum fyrir vopnaða vörðinn sem er hjá okkur 24 tíma á sólarhring. Auk þessa eru stofur, skirfstofur, þvottasvæði og risastór, yfirbyggð veröng og mikill garður. Hér geta allir komið í heimsókn sem vilja og búið við góðar aðstæður.

Við erum ekki enn komin með gardínur, sem er ágætt því við vöknum þá með sólinni um 6. Ég mæti svo í vinna 7:30 og vinn til 17. Það er fyrsti dagurinn minn í dag svo ég ætla ekki að vera lengi í tölvunni!

Gestur er alsæll hérna, allt fullt af eðlum og maurum, fuglum og bíflugum. Fyrsta morguninn okkar fórum við út í leit að eldspítum og sáum bæði hænu og mús - hann segir það gaman að búa í Nicaragua. Honum líkar líka jafn vel við föðurfólkið sitt og síðast þegar við vorum hérna. Efst á vinsældarlistanum er tía Eunicer sem býr með tengdó í húsinu "okkar" og er ný búin að eignast litla stelpu. Gestur kalla þá litlu ýmist systur sína eða frænku og er mjög hrifinn af henni. Einn bróðir Saúl eignaðist barn í nóvember sem við vorum að frétta af núna - segir margt um það hve barnsfæðingar eru lítill viðburður hér. Tengdó fór að sjá það þegar það fæddist en hefur ekki farið síðan... hummmm.

Saúl er núna að reyna að finna bíl fyrir okkur og tölvu en hvorttveggja er mjög flókið því hvorugt okkar veit neitt um þessa hluti, eða þekkjum neinn hér sem veit eitthvað um þessa hluti. Ég set meira inn á bloggið mitt þegar ég verð komin með tölvu heima, seinna í þessari viku, því ég vil ekki prívatblogga í vinnunni.

Góðar kveðjur úr sól og 36 gráðum (fer hækkandi).
Gerður

7 Comments:

Blogger Jonni said...

Þetta hljómar allt ofboðslega spennandi. Hlakka mikið til að sjá myndir af húsinu og næsta nágrenni. Er þetta eitthvað milla hverfi sem þið búið í, það mætti halda það :)

Ég ætlaði líka að spyrja, í hvaða borg þið væruð í Nicaragua (Managua?). Ef þú hefur minnst á það, þá hefur það farið alveg framhjá mér :P

Kveðja í hitann.

Jonni frændi og co.

19/3/07 19:37  
Blogger Gerður said...

já, við erum í Mangua og við búum í semi-millahverfi. Ég set inn myndir og fleira þegar ég fæ tölvu heima.
GG

20/3/07 14:14  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæl Gerður mín og þið öll.
Gott að allt gengur svona vel og Gessi litli er ánægður með allar eðlurnar og skordýrin :)
Hlakka til að sjá myndir af þessu flotta húsi.
Bestu kveðjur og hafið það gott í hitanum.
Unnur frænka

21/3/07 10:56  
Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Gerður mín. Ég bara sá þetta ekki fyrr en í gærkvöldi (20). Gaman að heyra frá ykkur. Ég ætla að hringja í kvöld eftir kl. 23. Vona að ég nái sambandi. Hlakka til að sjá myndir.
Kveðja MOR

21/3/07 17:43  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæja, mikið er gott hvað þetta er allt saman flott og fínt og bara vopnaður vörður að passa ykkur! Ú la la...
Það á ekki eftir að fara illa um fjölsk. þína Gerður mín þegar hún heimsækir ykkur um jólin!
Frábært og vonandi finnið þið út úr þessu með tölvuna. Ég hlakka til að heyra og sjá meira.
Kærar kveðjur til ykkar allra frá okkur Þór.
Hulda frænka

22/3/07 11:44  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæja mín kæra frænka loksins hefur maður tíma.Var að horfa á Gettu b áðan æsi spennandi,, En ég les að allt er gott hjá ykkur reyndar sagði mamma þín að hitinn væri að plaga þá feðga.. En nú er junior kominn á dagheimili og það er gott.Þetta er allt svo spennandi fyrir okkur maurlandann og segi ég eins og allir.. hlakka til að sjá myndir.. Vona að allt gangi upp hjá ykkur með það sem vantar uppá..Sendu mér svo slóðina þar sem ég get séð junior á
dagheimilinu,Heima mailið mitt er helgaolafs@hive.is
Gerður mín og Saul til hamingju með þetta allt og vegni ykkur vel.. Kystu þá feðga frá mér.. Þín frænka Helga

23/3/07 22:13  
Blogger Donni said...

Mikið rosalega er gaman að lesa þetta hjá ykkur Gerður mín, svo framandi. Slagar upp í sögur mínar þá ég var á henni Dollý sælla minninga (bara grín). En mig hlakkar til að sjá myndir líkt og frænda minn og systur.
Gangi ykkur allt í haginn elskurnar mínar svona langt í burtu.
Donni frændi

24/3/07 16:19  

Skrifa ummæli

<< Home