miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Arfurinn

Það er öllum fjölskyldum nauðsynlegt að eiga verðmæta hluti, hluti sem ganga kynslóð fram af kynslóð í erfðir. Best er auðvitað þegar hlutir erfast eftir einhverju kerfi, milli kynslóða t.d í beinan karl- eða kvenlegg. Nú eða milli nafna eða frumburða. Við erum heppin fjölskylda, Akurgerðis-fjölskyldan. Góða eigum við gripi marga, en einn þeirra er þó sínu bestur og hann gengur í erfðir eftir ákveðnu kerfi. Frumburðir fjölskyldu okkar eru bornir til erfða.

Maður var nefndur Njáll og var Guðmundsson, hann reisti nýbýlið Njálsstaði í Norðurfirði í Árneshreppi á Ströndum. Njáll var smiður góður og smíðaði í smiðju sinni á Njálsstöðum rétt fyrir 1940 kistil góðan. Kistilinn gaf hann sonardóttur sinni, frumburði sonar síns Gunnars og konu hans Valgerðar Guðrúnar. Þetta var ættmóðir Akurgerðis-fjölskyldunnar, Súsanna Margrét, sem fékk kistilinn á fermingardaginn hennar um 1940. Njáll lést 7. janúar 1941. Hann skrifaði með gjafabréf þegar hann færði sonardóttur sinni þetta "kúfort" eins og hann kallaði gripin og bað henni allrar blessunar.

Það bar svo við síðastliðið sumar, að frumburður 3ju kynslóðar Akurgerðis-fjölskyldunnar, Súsanna Margrét, náði þeim merka áfanga að verða fertug. Af annarri kynslóð var hún því talin nógu þroskuð til að axla þá ábyrgð sem því fylgir að móttaka og varðveita erfðagripinn góða, kúfortið frá Njálsstöðum. Mætti önnur kynslóð fjölskyldunnar öll ásamt tiltækum mökum til Súsönnu Margrétar og afhenti henni kúfortið við hátíðlega athöfn með viðeigandi ræðuhöldum og guðsblessun, líkt og langa-lang afi hennar hafði beðið ömmu hennar og nöfnu tæpum 70 árum áður. Var athöfnin og veislan sem fylgdi ógleymanleg öllum þeim er þar voru.

3 Comments:

Blogger Jonni said...

„Komdu og skoð'aðí kistuna mína!" Einhver? :)

Takk fyrir gott innlegg Donni faendi, þetta er búið að vera dapurt hjá okkur undanfarið ...

30/11/06 08:06  
Anonymous Nafnlaus said...

Dapurt hjá okkur ..já heldur betur.. maður klikkar á Akurgerði dag eftir dag og ekkert að gerast hjá okkur,, Svo kemur Donni bró svo blessunarlega skemtilegur með pistil um afhendingu ættargripsins sem var alveg ofsalega gaman í sumar þegar við færðum Súsönnu Margréti þennann forláta kistil sem amma hennar hafði fengið í ferminargjöf frá sínum afa eins og kemur framm.Og ekki nóg með það heldur líka bréf sem fylgdi kistlinum góða.Já mjög merkilegt og gaman að þessi gripur haldist hjá okkur.. En hvað um það gott innlegg Donni minn...Kveðjur Helga

30/11/06 21:37  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er langt síðan ég hef munað eftir að kíkja á bloggið okkar.
Það var aldrei neitt nýtt!!!
En í dag sagði Gerður sys mér af færslu Donna frá afmælishátíðinni í sumar svo ég fór auðvitað beint í að lesa það.
Fínt framtak hjá Jónka skó.
Kveðja frá Huldu í Lyon sem er alveg að komast í jólaham og verða tilbúin til að halda heim á klakann sinn kalda og halda þar heilög jól.

12/12/06 19:05  

Skrifa ummæli

<< Home